Collection: Bílavogir

Við bjóðum upp á áreiðanlegar bílavogir fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og iðnaðarsvæði þar sem nákvæm vigtun ökutækja er nauðsynleg. Lausnir okkar henta meðal annars fyrir sorpmóttökur, hafnir, efnistökusvæði, verktaka og flutningafyrirtæki.

 

Í boði eru bílavogir í fjölmörgum stærðum og útfærslum, bæði stálvogir og steyptar vogir, allt eftir því hvað hentar best fyrir aðstæður og notkun. Við bjóðum einnig upp á færanlegar bílavogir sem henta vel þar sem þörf er á sveigjanlegri eða tímabundinni lausn.

 

Fyrir svæði þar sem fyrir eru eldri undirstöður eða sérstakar byggingaraðstæður, bjóðum við upp á sérsmíðaðar bílavogir sem eru hannaðar til að passa við núverandi undirstöður. Slíkar lausnir geta sparað bæði tíma og kostnað við uppsetningu.

 

Við leggjum áherslu á vandaðan búnað, nákvæmni og áreiðanlega þjónustu. Við bjóðum einnig upp á uppsetningu, þjónustu og viðhald á bílavogum, þannig að vigtin starfi örugglega og nákvæmlega til lengri tíma.