Vogir.is voru með bás á sjávarútvegssýningunni í Fífunni í síðastliðnum september. Sýningin gekk vel fyrir sig og vakti athygli. Mikil lukka var meðal gesta vegna þess að 190 aflestrarhausinn frá Cardinal var settur í fiskabúr ásamt nokkrum gullfiskum. Vogin sem tengd var við hausinn var vel notuð og prófuðu mjög margir að stíga á hana. […]
Icelandic Fisheries Exhibition eða Icefish sýningin verður haldin 13-15 september næstkomandi. Vogir og Lagnir munu vera með þar í bás E63, en þar munum við sýna nokkrar vörur og kynna þá þjónustu sem við höfum upp á að bjóða. Sýningin var síðast haldin árið 2014, en þá mættu alls 15.219. Þetta er því stórt tækifæri […]
Vefsíðan okkar hefur nú fengið góða uppfærslu. Við teljum mikilvægt að þið getið séð þau verkefni sem við höfum verið að vinna að og þau verkefni sem eru í gangi hjá okkur. Á Facebook síðu okkar munu koma myndir frá verkefnum sem við erum að vinna ásamt fleiru skemmtilegu efni. Endilega haldið áfram að fylgjast […]
Síðla árs 2015 tók Norðurál á Grundartanga í notkun tvær nýjar gámavogir . Þær voru hannaðar og smíðaðar hjá okkur í samstarfi við vélsmiðjuna Steðja og verkfræðistofuna Alu1 sem sá um endurnýjun tækjabúnaðar í skautsmiðju Norðuráls. Gámarnir eru svo lestaðir með færiböndum sem ganga inn í gámana. Góð reynsla er nú þegar af vogunum .
Vogir og lagnir tóku í notkun nýjan vef á vormánuðum 2015. Þetta er í fyrsta sinn í sögu fyrirtækisins sem sett er upp vefsíða til að kynna vörur okkar og þjónustu. Vefsíðugerð var unninn af Marknet ehf. í góðu samstarfi við starfsfólk Voga og Lagna ehf. Við vonum að vefurinn nýtist viðskiptavinum okkar vel.